jæja, ég veit nú reyndar ekki hvort að fólk er ennþá að kíkja á þessu síðu, en þar sem ég nenni ekki að læra á myspace bloggið þá er ég að hugsa um að halda mig við þetta gamla góða blogg, þó svo að það sé reyndar búið að gera ansi miklar breytingar á þessari síðu síðan ég skrifaði síðast, það tók mig smá tíma að átta mig á hvernig maður færi að því að blogga hérna...but i figured it out.
ég var að byrja á mánudaginn með anítu í aðlögun hjá dagmömmu, fyrsta skrefið hennar away from me

það gengur bara glimrandi vel. Annars er svo sem ekki mikið að frétta af mér.
Ég er að fara að vinna í sumar sem verkstjóri í unglingavinnunni, það er í fyrsta skipti sem ég vinn úti, ég var aldrei sjálf í unglingavinnunni svo þetta verður ábyggilga mjög gaman, að fá að skipa litlum krökkum fyrir allan daginn, og svo verð ég í fríi allar helgar svo ég ætla mér að ferðast mjög mikið um landið í sumar.
Mamma og Axel eru að fara til köben í júní og tóku á leigu svakalega flotta tveggja hæða íbúð í miðbæ kaupmannahafnar og buðu okkur öllum (þ.e. mér, badda og óskari og okkar mökum og börnum) að fá gistingu hjá sér, en þar sem ég er búin að fá þessa vinnu í sumar þá gat ég ekki þegið það, svo kostuðu líka flugmiðarnir fyrir okkur þrjú rúmar 60 þúsund krónur, ég var nú ekki alveg að tíma því, og svo er hún Vala hans Óskars að fara að eiga í júlí svo hún getur nú varla verið mikið að ferðast svona undir lok meðgöngunnar þannig að þau einu sem gátu þegið þetta boð hjá þeim voru Baddi og Matta, og hennar börn. En þetta hefði ábyggilega verið svakalega gaman ef við hefðum öll geta komist...oh well.
Svo núna næstu jól þá munum við eyða þeim með fjölskyldu sigurgeirs þar sem við vorum með minni síðast, en þau eru eitthvað að tala um að fara eitthvað til útlanda og halda jólin þar, svo ég ætla að reyna að halda þeirri hugmynd á lofti þar sem ég er orðin ansi desperat að komast eitthvað til útlanda, ég er svo vön að fara einu sinni til tvisvar á hverju ári eitthvert að ég er alveg að fara yfir um.
Ég er búin að sækja um í sálfræði í haust í HÍ, ég er ekkert smá spennt að komast aftur í skóla, eftir að vera ekki búin að gera neitt af viti í tvö ár, fyrir utan að eiga barn, þá held ég að þetta verði mjög góð tilbreyting.
jæja ég held ég hafi nú ekki meira að segja í bili, vona bara að einhver sé ennþá að kíkja á síðuna

María